Fótboltaland

2. hæð
Fótboltaland í Smáralind
Fótboltaland í Smáralind
Fótboltaland í Smáralind

Fótboltaland er einn glæsilegasti skemmtigarður landsins með mikinn fjölda stafrænna tækja og þrauta sem tengjast fótbolta. Í Fótboltalandi er að finna afþreyingu fyrir börn og fullorðna þar sem vinsælasta íþrótt heims er í forgrunni. Þar eru um tuttugu mismunandi þrautabrautir og er þeim skipt í keppnisbrautir og skemmtibrautir. Á keppnisbrautunum reyna gestir að ná sem flestum stigum og sigra þannig vini eða fjölskyldu á viðkomandi brautum. Í skemmti brautunum snýst allt um að skemmta sér þó alltaf sé hægt að setja upp keppni í þeim líka ef gestir kjósa það. 

Helstu tækninýjungar eru notaðar í Fótboltalandi, þar á meðal RFID armbönd sem halda utan um skor keppenda og stafrænn fótboltabúnaður frá Elite Skills Arena sem notaður er á æfingasvæðum stærstu knattspyrnufélaga heims. 

Til baka í yfirlit

2. hæð