Hér er Home & you

23. nóvember 2023

Verslunin Home & you hefur opnað í Smáralind. Home & you er evrópsk verslunarkeðja með fallegum gjafa- og heimilisvörum. Verslunin er staðsett á 1.hæð á milli Zara og H&M.

Í Home & you er fjölbreytt úrval af fallegum vörum fyrir heimilið á hagstæðu verði. Í versluninni er meðal annars að finna þykk og mjúk handklæði, dásamlega heimilisilmi, falleg rúmteppi og mikið úrval af borðbúnaði ásamt ýmsu skemmtilegu í barnaherbergið. 

Kíktu við í Home & you