Fullkomnasta kvikmyndahús landsins

Smárabíó býður upp á allt það besta sem kvikmyndahúsagestir sækjast eftir. Salirnir eru allir hannaðir með það fyrir augum að áhorfendur njóti sýningarinnar við fullkomnustu aðstæður sem völ er á í dag. Risasýningartjald, fullkomið hljóðkerfi ásamt góðu útsýni úr gæðasætum tryggja þægindi áhorfenda og áhrifamikla upplifun.

Bíóið er með 5 sali og tekur rúmlega 1.000 manns í sæti:

  • Salur 1 400 manna
  • Salur 2 256 manna
  • Salur 3 71 manns lúxussalur
  • Salur 4 165 manna
  • Salur 5 120 manna

Lúxussalur

Konfektmoli Smárabíós er lúxussalurinn. Kvikmyndaunnendur láta líða úr sér í stillanlegum leðursætum með sérstakt borð fyrir veitingar. Salurinn tekur 71 gest og er bil milli sæta 2 metrar. Þjónustustig lúxussalarins er hærra en í öðrum sölum og leyfilegt er að taka með sér vínveitingar inn í salinn meðan á sýningu stendur. Miðaverð er hærra í þennan sal en aðra sali bíósins.

Ráðstefnuaðstaða

Allir salir Smárabíós nýtast til funda- og ráðstefnuhalds. Þeir eru útbúnir nauðsynlegum tækjum og tengingum og lýsing er góð. Úrval veitingastaða er í Vetrargarðinum og góð sýningaraðstaða sem nýst getur samhliða fundarhöldum.

Afgreiðslutímar

  • Virka daga 11 - 19
  • Fimmtudaga 11 - 21
  • Laugardaga 11 - 18
  • Sunnudagur 13 - 18

Netklúbbur Smáralindar

Skráðu þig í Netklúbbinn og fáðu upplýsingar um frábær tilboð og skemmtilega atburði.

Smelltu hér

Smáralind í símann

Náðu í Smáralindar-appið í snjallsímann þinn.  Er til bæði fyrir iPhone og Android.

Smelltu hér Smáralind í símann

Smáralind á Facebook

Fylgstu með okkur á Facebook. 

Skráðu þig hér !

Smelltu hér Smáralind á Facebook