Skemmtigarðurinn
Skemmtigarðurinn í Smáralind opnaði þann 12. nóvember 2011 og státar af 2000 fermetrum af skemmtun og taumlausri gleði á tveimur hæðum.
Neðri hæðin er stútfull af allskonar spennandi tækjum, leikjum og afþreyingu sem hentar öllum aldurshópum. Þar geta fjölskyldur, vinahópar, bekkir- og aðrir hópar reynt með sér og keppt í allskyns óhefðbundnum „greinum“ sem reyna á hæfni, heppni og hláturtaugar þátttakenda.
Efri hæðin höfðar meira til eldri aldurshópa. Þar er m.a. boðið upp á „lasertag“, „pool“ og pílukast auk þess sem gestir geta spilað ótal leiki á leikjagólfinu. Á barnum geta menn svo fengið sér hressingu meðan þeir slaka á, skipuleggja næsta leik eða spjalla saman um landsins gagn og nauðsynjar.
